Eyjakonan Cloé Lacasse, sem bjó í Vestmannaeyjum í fimm ár og er með íslenskan ríkisborgararétt, er farin frá Arsenal og til bandaríska knattspyrnufélagsins Utah Royals.
Cloé gekk til liðs við Arsenal frá portúgalska stórliðinu Benfica síðasta sumar og lék 28 leiki með félaginu þar sem hún skoraði fimm mörk.
Utah Royals spilar í gríðarlega sterku bandarísku NWSL-deildinni.