Brasilía náði ekki að fylgja sigri á Ekvador með öðrum þegar liðið heimsótti Paragvæ í undankeppni Suður-Ameríku fyrir HM 2026 í knattspyrnu karla í nótt. Lauk leiknum með 1:0-sigri Paragvæ.
Brasilía er í fimmta sæti undankeppninnar með tíu stig og fjögur töp eftir fyrstu átta leikina. Paragvæ er í sjöunda sæti með níu stig.
Diego Gómez skoraði sigurmark Paragvæ á 20. mínútu.
Úrúgvæ heimsótti Venesúela og tókst ekki að endurheimta annað sætið af Kólumbíu. Lauk leiknum með markalausu jafntefli.
Úrúgvæ er í þriðja sæti með 15 stig og Venesúela er í sjötta sæti með tíu stig.
Bólivía vann þá Síle á útivelli, 2:1, og Ekvador lagði Perú á heimavelli 1:0.