Messi snýr aftur

Lionel Messi mun spila fyrir Inter Miami á morgun.
Lionel Messi mun spila fyrir Inter Miami á morgun. AFP/Buda Mendes

Lionel Messi verður með Inter Miami þegar að liðið fær Philadelphia í heimsókn í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í Miami á morgun. 

Tata Martino þjálfari Inter Miami greindi frá tíðindunum á blaðamannafundi. 

Messi hefur ekkert spilað síðan hann fór meiddur af velli í úrslitaleik Ameríkubikarsins, Copa America, gegn Kólumbíu um miðjan júlí. 

Argentína vann leikinn og þar með sitt þriðja stórmót í röð. 

Inter Miami er í efsta sæti Austurdeildarinnar með 59 stig, átta stigum meira en Cincinnati í öðru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert