Jürgen Klopp var í dag sæmdur heiðursorðu Þýskalands fyrir störf hans í þágu þýska ríkisins.
Hann var sæmdur heiðursorðunni af Frank-Walter Steinmeier Þýskalandsforseta í Bellevue-höllinni í Berlínarborg í tilefni af degi þýskrar einingar.
Klopp, sem hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool í vor, er afar vinsæll í heimalandinu og þykir hafa verið Þýskalandi til sóma á erlendri grundu.
Hann stýrði einnig Mainz og Dortmund í Þýskalandi áður en hann tók við Liverpool árið 2015.