Fredrikstad tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum norska bikarsins í fótbolta með sigri á KFUM Osló á heimavelli.
Eftir markalausan venjulegan leiktíma og framlengingu réðust úrslitin í vítakeppni. Í henni vann Fredrikstad að lokum, 6:5.
Júlíus Magnússon, sem lék allan leikinn með Fredrikstad, skoraði úr sinni spyrnu í vítakeppninni.
Fredrikstad mætir Molde í úrslitum.