Hlín næstmarkahæst í Svíþjóð

Hlín Eiríksdóttir.
Hlín Eiríksdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir endaði næstmarkahæst í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Lokaumferðin fór fram í dag en lið hennar Kristianstad vann útisigur á Trelleborg, 5:0. Hlín skoraði alls 15 mörk í deildinni, jafnmikið og Cathinka Tandberg leikmaður Hammarby. 

Markahæst var síðan Momoko Tanikawa leikmaður Rosengård.

Hlín skoraði síðustu tvö mörk Kristiandstad í leiknum en Katla Tryggvadóttir hafði þá lagt tvö mörk upp. Guðný Árnadóttir lék allan leikinn fyrir Kristiandstad, líkt og hinar tvær. 

Kristianstad endar í fjórða sæti sænsku deildarinnar með 52 stig. 

Unnu 25 af 26

Guðrún Arnardóttir lék að vanda allan leikinn fyrir Rosengård í útisigri Svíþjóðarmeistaranna á Djurgården, 3:0, í dag. 

Rosengård vann 25 af 26 leikjum sínum í deildinni og endaði með langflest stig eða 75, og fékk aðeins níu mörk á síg á tímabilinu.

Sigdís skoraði og María lagði upp 

Hin 17 ára gamla Sigdís Eva Bárðardóttir lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik í deildinni og  skoraði í tapi Norrköping fyrir AIK, 3:2, í Norrköping. 

Mark Sigdísar kom á 21. mínútu en hún fór af velli á 59. mínútu. 

Norrköping hafnaði í fimmta sæti með 38 stig. 

María Catharina Ólafsdóttir Gros lagði upp fyrsta mark Linköping í sigri á Vittsjö, 3:2. 

María lék allan leikinn en Linköping hafnaði í níunda sæti deildarinnar með 29 stig. 

Växjö vann útisigur á Örebro, 2:1, í Íslendingaslag. 

Bryndís Arna Níelsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn fyrir Växjö en miðjumaðurinn Þórdís Elva Ágústsdóttir kom inn á 74. mínútu. 

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Katla María Þórðardóttir komu báðar inn á hjá Örebro þegar leið á seinni hálfleik.

Växjö endar í áttunda sæti með 30 stig en Örebro féll. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka