Sneri aftur eftir heilablóðfall

Ellie Roebuck er hún lék með Manchester City.
Ellie Roebuck er hún lék með Manchester City. Ljósmynd/Manchester City

Knattspyrnukonan Ellie Roebuck, markvörður enska landsliðsins og Barcelona, sneri aftur á knattspyrnuvöllinn um helgina, tæpu ári eftir að hún fékk heilablóðfall.

Roebuck stóð á milli stanganna í 4:1-sigri Barcelona á Real Betis í spænsku 1. deildinni á laugardag og lék þar með sinn fyrsta leik fyrir spænska stórveldið.

Í mars síðastliðnum greindi Roebuck, sem er 25 ára gömul, frá því að hún hafi fengið heilablóðfall á síðasta ári.

Óttast var að það myndi hafa áhrif á sjón hennar en svo reyndist ekki vera, auk þess sem heilablóðfallið kom ekki niður á heilastarfseminni.

Roebuck samdi við Barcelona í sumar eftir að hafa komið á frjálsi sölu frá Manchester City, þar sem hún hafði síðast spilað fyrir tíu mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert