Arnar og Eiður Smári saman til Danmerkur?

Arnar Grétarsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru saman hjá Club …
Arnar Grétarsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru saman hjá Club Brugge. AFP

Arnar Grétarsson og Eiður Smári Guðjohnsen koma til greina sem næstu þjálfarar danska knattspyrnuliðsins Kolding.

Bold í Danmörku greinir frá að Kolding hafi boðað Arnar, sem hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Val á miðju síðasta tímabili, í viðtal vegna starfsins.

Fari svo að Arnar fái starfið gæti Eiður Smári Guðjohnsen fylgt honum til Danmerkur en Eiður þjálfaði síðast karlalið FH en lét af störfum í lok árs 2022.

Arnar og Eiður þekkjast vel því þeir léku saman með íslenska landsliðinu. Þá var Eiður leikmaður AEK Aþenu í Grikklandi og Club Brugge í Belgíu þegar Arnar var yfirmaður knattspyrnumála hjá félögunum. 

Kolding er í 7. sæti dönsku B-deildarinnar með 24 stig eftir 18 leiki. Ari Leifsson er leikmaður Kolding. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert