Hákon á innkaupalista bestu liða Englands?

Luis Díaz reynir að ná boltanum af Hákoni Arnari Haraldssyni …
Luis Díaz reynir að ná boltanum af Hákoni Arnari Haraldssyni í leik Liverpool og Lille í fyrrakvöld. AFP/Paul Ellis

Það var áhugavert að fylgjast með Hákoni Arnari Haraldssyni á stóra sviðinu í fyrrakvöld.

Hann var mættur með franska liðinu Lille á einhvern erfiðasta útivöll í Evrópu, og mótherjarnir líklega besta knattspyrnulið álfunnar um þessar mundir.

Liverpool er með fullt hús stiga í Meistaradeildinni og örugga forystu í ensku úrvalsdeildinni.

En Skagamaðurinn sýndi á Anfield að hann á heima í þessum gæðaflokki. Smá mistök snemma leiks slógu Hákon engan veginn út af laginu og hann var einn besti maður Frakkanna þegar upp var staðið.

Það kæmi mér ekki á óvart þótt einhver af bestu liðum Englands væru komin með Hákon á sinn innkaupalista eftir leikinn í fyrrakvöld, hafi hann ekki þegar verið kominn þangað.

Bakvörðinn má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert