Damir og félagar byrja vel í bikarnum

Damir Muminovic kom til DPMM í desember.
Damir Muminovic kom til DPMM í desember. mbl.is/Ólafur Árdal

Damir Muminovic og félagar í Brúnei DPMM byrja vel í bikarkeppni Singa­púrs og sigruðu Young Lions 2:0 í dag.

Damir spilaði allan leikinn og liðið er á toppi A-riðils með fjögur stig eftir tvo leiki. Davis Ikaunieks kom DPMM yfir eftir aðeins átta mínútur úr vítaspyrnu og Miguel Oliveira skoraði annað mark liðsins á 72. mínútu.

DPMM er í næst síðasta sæti deildarinnar með 21 stig í 22 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert