Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli því fyrirliðinn Son Heung-min verður ekki með liðinu er það mætir Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld.
Son er að glíma við meiðsli og verður ekki búinn að jafna sig fyrir leikinn annað kvöld og ferðaðist hann því ekki með Tottenham til Þýskalands.
Ange Postecoglu knattspyrnustjóri liðsins staðfesti tíðindin á blaðamannafundi í dag. Er Son eini leikmaður enska liðsins sem er ekki klár í slaginn.
Liðin skildu jöfn, 1:1, í London í fyrri leiknum og á Tottenham erfitt verkefni fyrir höndum í Þýskalandi.