Verður Klopp næsti stjóri spænska stórveldisins?

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP/Kerstin Joensson

Þjóðverjinn Jürgen Klopp er ofarlega á lista Real Madrid sem næsti knattspyrnustjóri karlaliðs félagsins ef Ítalinn Carlo Ancelotti hættir eftir tímabilið.

Spænski miðilinn Sport segir frá en Klopp hætti sem stjóri karlaliðs Liverpool eftir síðasta tímabil. 

Real Madrid hefur ekki gengið vel á tímabilinu en liðið mætir Arsenal í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Madridarborg í kvöld. 

Arsenal er 3:0-yfir eftir fyrri leikinn og verður verkefnið því krefjandi fyrir Madridarmenn. 

Þá er liðið einnig fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona í spænsku deildinni þegar sjö umferðir eru eftir. 

Samkvæmt Sport eru efasemdir hjá forráðamönnum Real Madrid um hvort Ancelotti, sem hefur unnið allt hjá félaginu, geti haldið áfram með liðið. 

Þá hafa áhrifamenn í kringum forseta félagsins Florentino Pérez stungið upp á því að reyna fá Klopp. 

Klopp tók við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull á síðasta ári og ekki ljóst hvort hann myndi vilja verða stjóri Real Madrid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert