Enska liðið Tottenham er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir útisigur á þýska liðinu Frankfurt í kvöld, 1:0. Fyrri leikurinn endaði 1:1 og vann Lundúnaliðið einvígið því 2:1.
Framherjinn Dominic Solanke skoraði sigurmark Tottenham á 43. mínútu úr víti eftir að brotið var á James Maddison innan teigs.
Spænska liðið Athletic Bilbao er einnig komið í undanúrslit eftir 2:0-heimasigur á Rangers frá Skotlandi. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli.
Oihan Sancet gerði fyrra mark Bilbao úr víti í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Nico Williams gerði annað markið á 80. mínútu.
Tottenham mætir annaðhvort norska liðinu Bodø/Glimt eða Lazio frá Ítalíu í undanúrslitum. Athletic mætir annaðhvort Manchester United eða Lyon en þegar þessi frétt er skrifuð er framlenging í Manchester og í Róm.