United áfram eftir stórkostlegan níu marka leik

Manchester United er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir sigur á franska liðinu Lyon í stórkostlegum leik á Old Trafford í Manchester í kvöld.

United vann framlengdan leik 5:4 eftir að Lyon komst í 4:2 í framlengingu. Enska liðið mætir Athletic Bilbao frá Spáni í undanúrslitum. Urðu samanlagðar lokatölur í einvíginu 7:6.

Heimamenn í United byrjuðu betur og komust yfir á 10. mínútu er Manuel Ugarte afgreiddi boltann af öryggi í markið eftir sendingu frá Alejandro Garnacho.

Alexandre Lacazette hjá Lyon og Harry Maguire varnarmaður United eigast …
Alexandre Lacazette hjá Lyon og Harry Maguire varnarmaður United eigast við í kvöld. AFP/Oli Scarff

Var staðan 1:0 fram að lokamínútu fyrri hálfleiks en þá tvöfaldaði Diogo Dalot forskotið með góðu skoti í stöng og inn eftir langa sendingu frá Harry Maguire.

Gestirnir í Lyon neituðu að gefast upp og þeir minnkuðu muninn í 2:1 á 71. mínútu þegar Corentin Tolisso skoraði með skalla af stuttu færi.

Átta mínútum síðar jafnaði Nicolás Tagliafico með skoti úr þröngu færi eftir sendingu frá Ainsley Maitland-Niles.

Corentin Tolisso minnkar muninn í 2:1.
Corentin Tolisso minnkar muninn í 2:1. AFP/Oli Scarff

Urðu mörkin ekki fleiri en Lyon varð fyrir áfalli á 89. mínútu þegar áðurnefndur Tolisso fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Léku gestirnir því manni færri alla framlenginguna.

Þrátt fyrir það skoraði Rayan Cherki þriðja markið á 105. mínútu með glæsilegri afgreiðslu við vítateigslínuna. Alexandre Lacazette gerði svo annað mark Lyon í framlengingunni úr víti á 110. mínútunni og staðan allt í einu orðin 4:2 fyrir Lyon.

United neitaði að gefast upp og Bruno Fernandes minnkaði muninn úr víti á 114. mínútu og Kobbie Mainoo jafnaði með glæsilegri afgreiðslu úr teignum á lokamínútu framlengingarinnar.

Manuel Ugarte skorar fyrsta mark leiksins.
Manuel Ugarte skorar fyrsta mark leiksins. AFP/Oli Scarff

Heimamenn voru ekki hættir því varnarmaðurinn Harry Maguire tryggði United einn ótrúlegasta sigur liðsins í mörg ár er hann skallaði í netið af stuttu færi í uppbótartíma framlengingarinnar og þar við sat.

Man. United 5:4 Lyon opna loka
120. mín. Það eru enn rúmar tvær mínútur eftir af uppbótartíma. Nægur tími fyrir Lyon til að skora tíunda markið í þessum lygilega leik.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert