Vita ekki hvers vegna Arnór var ekki með

Arnór Sigurðsson fagnar marki með Malmö.
Arnór Sigurðsson fagnar marki með Malmö. Ljósmynd/Malmö

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson var ekki með á æfingu hjá sænska knattspyrnuliðinu Malmö í dag.

Fotbollskanalen í Svíþjóð greinir frá í dag og segir óljóst hvers vegna íslenski landsliðsmaðurinn æfði ekki með liðinu.

Líklegasta skýringin er sú að Arnór sé að glíma við meiðsli en hann glímdi við erfið meiðsli og veikindi hjá enska félaginu Blackburn, áður en hann samdi við Malmö.

Malmö leikur við Sirius í sænsku úrvalsdeildinni á morgun og er óvíst hvort Arnór verði með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert