Knattspyrnustjórinn Xabi Alonso er efstur á óskalista spænska stórveldisins Real Madrid sem eftirmaður starfsbróðurs síns Carlo Ancelotti.
Ancelotti mun að öllum líkindum hætta sem stjóri Evrópu- og Spánarmeistara Real Madrid eftir tímabilið. Er Real því nú þegar farið að leita að eftirmönnum og er Alonso, sem lék á sínum tíma með liðinu í mörg ár, efstur á óskalistanum.
Alonso hefur gert frábæra hluti með Leverkusen sem vann þýsku deildina og bikarinn á síðustu leiktíð.
Alonso er á samningi hjá Leverkusen og til að fá hann næsta sumar þyrfti Real Madrid að greiða 15 til 20 milljónir evra til þýska félagsins samkvæmt SkySports.