Sara Björk Gunnarsdóttir átti stórleik fyrir Al Qadsiah er liðið valtaði yfir Al Taraji á útivelli í efstu deild Sádi-Arabíu í fótbolta í kvöld, 8:0.
Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi lék allan leikinn fyrir sitt lið og skoraði tvö mörk.
Sara og stöllur eru í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig eftir 17 leiki, 16 stigum á eftir toppliði Al Nassr sem er búið að stinga af á toppnum.