Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn David Beckham var frægur fyrir glæsilegar aukaspyrnur meðan á ferlinum stóð og skoraði hann ófá glæsimörkin á farsælum ferli.
Beckham er stofnandi og eigandi Inter Miami í Bandaríkjunum og hann sýndi listir sínar á æfingasvæði félagsins.
Gerði hann sér þá lítið fyrir og skoraði með spyrnu töluvert frá endalínunni úr þröngu færi. Beckham var svo stoltur af spyrnunni að hann birti myndband af henni sem sjá má hér fyrir neðan.