Guðmundur náði stórum áfanga

Guðmundur Þórarinsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Norður-Makedóníu á …
Guðmundur Þórarinsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Norður-Makedóníu á Laugardalsvellinum árið 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson lék tímamótaleik á ferli sínum í dag þegar lið hans, Noah, tók á móti Gandzasar í efstu deildinni í Armeníu og sigraði 1:0.

Guðmundur lék þar sinn 400. deildaleik á ferlinum og er 42. íslenski knattspyrnumaðurinn frá upphafi sem nær þeim áfanga.

Guðmundur, sem er Selfyssingur og verður 33 ára 15. apríl, hóf meistaraflokksferilinn 16 ára gamall með Selfyssingum árið 2008. Hann var í liði Selfoss sem vann sér sæti í efstu deild haustið 2009 og lék með því þar á fyrsta ári félagsins meðal þeirra bestu árið 2010.

Hann fór þaðan til ÍBV og lék með Eyjamönnum í úrvalsdeildinni árin 2011 og 2012 en hefur síðan leikið sem atvinnumaður erlendis frá og með árinu 2013.

Guðmundur Þórarinsson í leik með ÍBV gegn Breiðabliki á Hásteinsvelli …
Guðmundur Þórarinsson í leik með ÍBV gegn Breiðabliki á Hásteinsvelli árið 2011. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Atvinnuferillinn hófst hjá Sarpsborg í Noregi þar sem Guðmundur lék árin 2013 og 2014 í úrvalsdeildinni þar sem hann spilaði 59 af 60 leikjum liðsins.

Meistari í Noregi og Bandaríkjunum

Þaðan lá leiðin til Danmerkur og Guðmundur lék í rúmlega ár með Nordsjælland í úrvalsdeildinni en þá hélt hann aftur til Noregs og lék með Rosenborg tímabilið 2016 þar sem hann varð bæði norskur meistari og bikarmeistari.

Guðmundur fór til Svíþjóðar og spilað með Norrköping þrjú næstu ár, 2017 til 2019, og lék þar 84 úrvalsdeildarleiki.

Þá tók ferillinn nýja stefnu því Guðmundur fór vestur um haf og spilaði með New York City í bandarísku MLS-deildinni í tvö tímabil. Þar bætti hann öðrum meistaratitli í safnið því New York City varð meistari árið 2021.

Guðmundur Þórarinsson fagnar eftir sigur New York í vítaspyrnukeppni í …
Guðmundur Þórarinsson fagnar eftir sigur New York í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Austurdeildar MLS-deildarinnar bandarísku haustið 2021. Ljósmynd/New York City

Hann kom aftur til Evrópu í ársbyrjun 2022 og lék til vorsins með AaB frá Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni.

Næsti áfangastaður var gríska eyjan Krít en þar lék Guðmundur með OFI í tvö tímabil í úrvalsdeildinni frá 2022 til 2024.

Hann gekk svo til liðs við Noah í Armeníu síðasta sumar og allt bendir til þess að hann verði meistari með liðinu í vor en Noah er með þrettán stiga forystu þegar sex umferðum er ólokið.

Guðmundur Þórarinsson á tíma sínum hjá OFI á grísku eyjunni …
Guðmundur Þórarinsson á tíma sínum hjá OFI á grísku eyjunni Krít. Ljósmynd/OFI

Leikirnir 400 hjá Guðmundi skiptast þannig að á Íslandi lék hann 79 deildarleiki með Selfossi og ÍBV og skoraði 7 mörk, þar af 59 leikir og 3 mörk í efstu deild.

Í Noregi hefur hann leikið 83 leiki og skorað 8 mörk, í Danmörku 41 leik og eitt mark, í Svíþjóð 84 leiki og 4 mörk, í Bandaríkjunum 47 leiki og 2 mörk, í Grikklandi 57 leiki og 2 mörk, og nú eru komnir níu leikir og eitt mark í Armeníu.

Guðmundur hefur leikið 15 A-landsleiki fyrir Íslands hönd, lék 14 leiki með 21-árs landsliðinu og 18 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Guðmundur er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem nær 400 leikja markinu í 15 mánuði en síðastur á undan honum var annar Selfyssingur og jafnaldri hans, Jón Daði Böðvarsson, sem spilaði sinn 400. leik á nýársdag 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert