Federico Valverde skoraði sigurmark Real Madrid undir blálok leiks gegn Athletic Bilbao, 1:0, í efstu deild spænska fótboltans í Madrid í kvöld.
Real Madrid er í öðru sæti deildarinnar með 69 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona þegar sex umferðir eru eftir.
Real Madrid var betri allan leikinn en gekk erfiðlega að koma boltanum í netið. Vinicius Junior skoraði á 80. mínútu leiksins en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Valverde skoraði síðan sigurmarkið undir blálok leiks með svakalegu utanfótarskoti á lofti sem fór í bláhornið vinstra megin, 1:0.