Stuðningsmenn Real Madrid eru margir hverjir orðnir þreyttir á frönsku stórstjörnunni Kylian Mbappé ef marka má viðbrögð þeirra í leik Real og Athletic Bilbao í spænsku 1. deildinni í fótbolta á laugardag.
Mbappé spilaði ekki leikinn, sem Real vann 1:0, þar sem hann tók út leikbann en Frakkinn fékk rautt spjald í leik Real gegn Alavés 13. apríl.
Þá átti Mbappé ekki góðan leik er liðið tapaði fyrir Arsenal, 2:1, í Meistaradeildinni á dögunum og féll úr leik.
Mappé var sýndur á skjá á Bernabeu-vellinum á laugardag þar sem hann var í stúkunni.
Tóku þá margir stuðningsmenn upp á því að baula á sóknarmanninn, þrátt fyrir að hann sé með 22 mörk í 29 deildarleikjum með liðinu á tímabilinu.