Fernando Morientes, fyrrverandi leikmaður Real Madrid og Liverpool, sagði frá heilsufarsvandamálum sem hann hefur glímt við undanfarnar vikur.
Morientes, sem er 49 ára, tilkynnti þetta í spænska sjónvarpsþættinum Tiempo de Juego þar sem hann er tíður gestur.
„Mér leið illa eftir mörg ferðalög. Á leiðinni frá Huelva til Madrídar fann ég fyrir miklum verkjum fyrir brjósti, stingandi verk undir bringubeini,“ sagði Morientes og hélt áfram:
„Ég hélt það væri eitthvað að maganum mínum og vildi ekki fara á spítalann. Að nóttu til fann ég fyrir einhverju og fór til læknis. Þeir komust að því að hjartaensím mín voru mjög há og urðu uggandi.“
Morientes sagði að læknarnir hefðu byrjað að leita að hjartagalla en fundið ekkert. Þeir uppgötvuðu síðan að hann væri með blóðtappa í lungunum.
Fyrrverandi spænski landsliðsmaðurinn þurfti því að ganga í gegnum margar klukkustundir í óvissu og ótta. Kom einnig í ljós að hann var með blóðtappa aftan í hné.
„Ég eyddi fimm dögum á sjúkrahúsinu og hræddi fjölskyldu mína og mig til dauða,“ sagði Morientes.
Spænska goðsögnin sagði að fréttirnar kæmu honum á óvart en hann taldi sig vera heilbrigðan einstakling sem hvorki reykir né drekkur.
Morientes lék með Real Madrid á árunum 1997 til 2005 og vann þrisvar Meistaradeildina með félaginu. Þar að auki á hann 47 landsleiki með spænska landsliðinu.