Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski verður ekki með Barcelona í næstu leikjum vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Celta Vigo síðastliðinn laugardag.
Lewandowski fór af velli á 78. mínútu og nú er ljóst að hann verður frá keppni í allt að fjórar vikur.
Missir hann af tveimur stórleikjum en Barcelona mætir Real Madrid í úrslitum spænska bikarsins næstkomandi laugardag og Inter Mílanó í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar næstkomandi miðvikudag.
Óvíst er hvort Pólverjinn verði leikfær fyrir seinni leikinn í Mílanó 6. maí næstkomandi.