Daníel Leó Grétarsson hefur spilað afar vel með Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta á tímabilinu.
Varnarmaðurinn hefur leikið 19 leiki í deildinni á tímabilinu og í þeim hefur Sönderjyske fengið 1,42 stig að meðaltali í leik.
Hann hefur misst af átta leikjum og þeim hefur liðið aðeins fengið tvö stig, eða 0,25 stig að meðaltali í leik.
Sönderjyske er í þriðja sæti neðri hlutans í dönsku deildinni, níu stigum fyrir ofan fallsæti.
Daniel Gretarsson er Sønderjyskes vigtigste spiller. Han har været med i 19 kampe og i dem har Sønderjyske fået 27 point (1,42 point pr. kamp), mens de i de otte kampe, hvor islændingen ikke har været med, har hentet to point (0,25 point pr. kamp).
— Jonas Schwartz (@JonasSchwartz75) April 20, 2025