Öllum knattspyrnuleikjum á Ítalíu sem áttu að fara fram í dag hefur verið frestað vegna andláts Frans páfa sem lést í morgun, 88 ára að aldri.
Fjórir leikir áttu að fara fram í ítölsku A-deildinni og þar á meðal leikur Alberts Guðmundssonar og félaga í Fiorentina á útivelli gegn Cagliari.
Ítalska knattspyrnusambandið greindi frá í dag og sagði frestunina gilda um knattspyrnu á öllum stigum, frá A-deild og til áhugamanna.