Sænski knattspyrnumaðurinn Victor Lindelöf hjá Manchester United yfirgaf Old Trafford, heimavöll liðsins, í hálfleik er það mætti Lyon í Evrópudeildinni í síðustu viku.
Rúben Amorim, knattspyrnustjóri United, sagði á blaðamannafundi eftir leik að hann hafi yfirgefið völlinn vegna fjölskyldumáls.
Maja Lindelöf, eiginkona varnarmannsins knáa, greindi frá á Instagram að sonur þeirra hafi slasast illa er hann féll niður stiga og lenti með andlitið á gleri. Orðaði hún afleiðingarnar sem svo að enni drengsins hafi verið í tveimur hlutum.
Var strákurinn fluttur rakleiðis á spítala þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð. Allt fór þó vel og er sonur hjónanna búinn að ná sér vel.