Federico Valverde skoraði glæsilegt sigurmark fyrir Real Madrid er liðið vann dramatískan heimasigur á Athletic Bilbao í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær.
Stefndi allt í markalaust jafntefli þegar Valverde skoraði markið fallega og tryggði Real stigin þrjú.
Svipmyndir úr leiknum má sjá með því að smella hér en sigurmarkið kemur eftir um tvær og hálfa mínútu.