Tvær íslenskar stoðsendingar í Íslendingaslag

Guðný Árnadóttir, númer 20, og Guðrún Arnardóttir, númer 18, spiluðu …
Guðný Árnadóttir, númer 20, og Guðrún Arnardóttir, númer 18, spiluðu allan leikinn. mbl.is/Arnþór Birkisson

Svíþjóðarmeistarar Rosengård höfðu betur gegn Kristianstad á heimavelli í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2:1.

Guðrún Arnardóttir lagði upp fyrra mark Rosengård á 26. mínútu og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar að vanda. Ísabella Sara Tryggvadóttir var allan tímann á bekknum en hún er nýkomin til félagsins frá Val.

Katla Tryggvadóttir lék fyrstu 79 mínúturnar með Kristianstad og lagði upp mark liðsins á 75. mínútu. Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir léku allan leikinn.

Rosengård er í fjórða sæti deildarinnar með níu stig eftir fjórar umferðir. Kristianstad er í tíunda sæti með þrjú stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert