Yfirgefur félagið eftir tíu ár

Jonathan Tah í leik með Bayer Leverkusen á þessu tímabili.
Jonathan Tah í leik með Bayer Leverkusen á þessu tímabili. AFP/Pau Barrena

Þýski varnarmaðurinn Jonathan Tah hefur gefið út að hann muni yfirgefa Bayer Leverkusen í lok tímabilsins.

Samningur Tah rennur út í sumar en hann hefur verið á mála hjá félaginu í tíu ár.

Tah, sem er 29 ára, á að baki 398 leiki með Leverkusen en hann varð bæði þýskur meistari og bikarmeistari á síðasta ári með félaginu.

Þjóðverjinn hefur verið orðaður við Barcelona undanfarið en liðið er að leita sér að nýjum miðverði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert