Barcelona jók forskot sitt á toppi spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu karla með því að leggja Mallorca að velli með minnsta mun, 1:0, á heimavelli í kvöld.
Barcelona er nú með sjö stiga forskot á Real Madríd, sem á þó leik til góða. Barcelona á fimm leiki eftir og Madrídingar sex.
Í kvöld var það Dani Olmo sem skoraði sigurmark Börsunga strax í upphafi síðari hálfleiks.