Freyr Alexandersson hefur búið einn í Bergen undanfarnar vikur en hann tók við sem þjálfari karlaliðs Brann í fótbolta fyrir tímabilið. Fjölskylda hans er enn ekki flutt inn til hans í Noregi.
„Þetta var ljúft fyrstu vikurnar en svo verður erfitt að vera einn,“ sagði Freyr í samtali við Nettavisen í Noregi.
„Það er hættulegt að líða svona. Ég hef samband við þau en það fara 20 tímar alla daga í að hugsa um Brann. Það var gott til að byrja með en svo byrjar maður að finna fyrir því,“ sagði Freyr.
Fjölskyldan flytur til Noregs í júlí en það tók sinn tíma að finna íbúð við hæfi. „Það var erfitt, já. Við fórum yfir það hvort við vildum kaupa eða leigja en íbúðarverð hérna er mjög hátt,“ sagði hann.
Freyr viðurkenndi að hann hefði stundum áhyggjur af fjölskyldunni, á meðan hann er í öðru landi.
„Það er mikið að gerast í þeirra lífi. Stundum gerast hlutir og ég hef áhyggjur. Þá er erfitt að vera ekki með þeim. Þú vilt vera eins nálægt þeim og hægt er,“ sagði hann.
Viðtalið má sjá í heild sinni með því að smella hér.