Real Madríd vann nauman útisigur á Getafe, 1:0, í Madrídarslag í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu karla í kvöld.
Real Madríd minnkaði þar með forskot Barcelona á toppi deildarinnar niður í fjögur stig á ný en bæði lið eiga aðeins fimm leiki eftir á tímabilinu. Þar á meðal eiga þau eftir að mætast innbyrðis í næsta mánuði.
Arda Güler skoraði sigurmark Real Madríd á 21. mínútu í kvöld.
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sneri hjá Real Sociedad eftir að hafa glímt við smávægileg meiðsli þegar hann kom inn á sem varamaður í 1:0-tapi fyrir Alavés á útivelli.
Orri Steinn kom inn á strax eftir að Alavés skoraði á 65. mínútu en tókst ekki frekar en samherjum sínum að jafna metin.
Real Sociedad er í níunda sæti og er í harðri baráttu um Evrópusæti.