Spænski dómarinn Ricardo de Burgos Bengoetxea, sem dæmir úrslitaleik Real Madrid og Barcelona í spænska bikarnum annað kvöld, felldi tár á blaðamannafundi fyrir leikinn í dag.
Forráðamenn Real eru ekki sáttir við að Bengoetxea sé að dæma leikinn. Birti sjónvarpsstöð félagsins myndband af hinum ýmsu mistökum sem dómarinn hefur gert á ferli sínum á heimasíðu þess í aðdraganda leiksins.
Real hefur háð stríð við dómarastéttina á Spáni og birt nokkur svipuð myndbönd undanfarnar vikur og kvartað formlega yfir dómurum eftir nokkra leiki í spænsku 1. deildinni í vetur.
„Þegar sonur minn mætir í skólann og bekkjarfélagarnir segja honum að faðir þeirra sé þjófur er það ógeðslegt. Ég reyni að kenna syni mínum að ég sé heiðarlegur maður, sem geri mistök eins og aðrir íþróttamenn.
Þetta er mjög erfitt og ég mæli ekki með þessu fyrir neinn. Það sem við erum að ganga í gegnum er ekki í lagi, ekki bara í atvinnufótbolta heldur í yngri flokkum líka,“ sagði dómarinn með tárin í augunum á fundinum í dag.