Í fangelsi fyrir manndráp af gáleysi

Lucas Akins í leik með Mansfield.
Lucas Akins í leik með Mansfield. Ljósmynd/Mansfield

Knattspyrnumaðurinn enski Lucas Akins var í dag dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi.

Hinn 33 ára gamli Adian Daniel lést tíu dögum eftir að Akins keyrði á hann nálægt Huddersfield í mars árið 2022.

Daniel var á hjóli þegar Akins keyrði á hann í Mercedes G-Wagon-bifreið sinni. Átti Daniel réttinn en Akins stöðvaði ekki fyrir Daniel.

Akins er leikmaður Mansfield í C-deild Englands. Hann hefur einnig spilað með Burton, Stevenage, Tranmere og Huddersfield í neðri deildum Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert