Karólína innsiglaði sigurinn

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leverkusen vann í kvöld 3:1-útisigur á Turbine Potsdam í efstu deild þýska fótboltans. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 40 stig eftir 20 leiki.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir byrjaði á bekknum hjá Leverkusen. Hún kom inn á hjá liðinu á 74. mínútu og skoraði þriðja markið á 89. mínútu.

Íslenska landsliðskonan hefur þurft að sætta sig við nokkra bekkjarsetu í undanförnum leikjum og aðeins byrjað einn leik af síðustu fimm hjá Leverkusen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert