Kolbeinn vildi rautt á Arnór (myndskeið)

Kolbeinn Þórðarson var ekki sáttur við brot Arnórs Ingva.
Kolbeinn Þórðarson var ekki sáttur við brot Arnórs Ingva. Ljósmynd/KSÍ

Kolbeinn Þórðarson leikmaður Gautaborgar var ekki sáttur við brot Arnórs Ingva Traustasonar hjá Norrköping en liðin mættust í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

Gautaborg vann leikinn 3:2 og fór Kolbeinn í viðtal við Max-sjónvarpsstöðina eftir leik. Var hann spurður út í brot landa síns og var snöggur að svara: „Þetta er rautt.“

Arnór slapp með skrekkinn og fékk ekki einu sinni spjald. Brotið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert