Preussen Münster gerði jafntefli við Darmstadt, 1:1, í þýsku B-deild karla í knattspyrnu í Münster í dag.
Preussen Münster er í harðri fallbaráttu en liðið er með 29 stig í 17. og næstsíðasta sæti. Hins vegar er Ulm í 16. sæti með jafnmörg stig en liðið sem hafnar í 16. sæti fer í umspilsleik við liðið sem hafnar í þriðja sæti í C-deildinni.
Aðeins þrjár umferðir eru eftir og eiga liðin eftir að mætast í síðustu umferðinni.
Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á í seinni hálfleik í liði Preussen Münster sem jafnaði á 63. mínútu. Hann fékk síðan gult spjald undir lok leiks.