Noregsmeistarar Vålerenga töpuðu illa fyrir toppliði Brann, 3:0, í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á heimavelli í Osló í dag.
Vålerenga, sem vann deildina með yfirburðum í fyrra, er með tólf stig eftir sex umferðir en Brann er nú þegar sex stigum á undan með fullt hús eða 18 stig.
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir lék að vanda allan leikinn fyrir Vålerenga.