Missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu

Antonio Rüdiger þurfti aðhlynningu áður en hann fór af velli.
Antonio Rüdiger þurfti aðhlynningu áður en hann fór af velli. AFP/Josep Lago

Þjóðverjinn Antonio Rüdiger missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu í tapi Real Madrid fyrir Barcelona, 3:2, í úrslitaleik spænska bikarsins í knattspyrnu í Sevilla í gærkvöldi. 

Rüdiger fór af velli fyrir framherjann Endrick þegar staðan var 2:2 í framlengingunni en Jules Koundé skoraði síðan sigurmark Börsunga á 116. mínútu. 

Kylian Mbappé var að keyra upp í lokasókn Madridinga en þá sló hann frá sér í andlit Eric Garcia leikmanns Barcelona og dómarinn Ricardo De Burgos Bengoetxea dæmdi aukaspyrnu. 

Þá trompaðist bekkur Real Madrid og lét öllum illum látum. Í aðdraganda leiksins voru Madridingar búnir að saka dómarann um að vera á móti sér og hótuðu meðal annars að spila ekki leikinn ef hann dæmdi. 

Rüdiger gekk manna lengst í ólátunum og fleygði einhverju í átt að dómaranum. Fyrir það fékk hann beint rautt spjald en þá brjálaðist hann enn meira og leit út fyrir að hann ætlaði að fara í dómarann, en starfsmenn Real Madrid stöðvuðu hann af. 

Rüdiger gæti átt yfir höfði sér langt bann fyrir sína framkomu en hann hefur beðist afsökunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert