Fékk sex leikja bann

Antonio Rüdiger í baráttu við Ferran Torres í úrslitaleiknum á …
Antonio Rüdiger í baráttu við Ferran Torres í úrslitaleiknum á laugardag. AFP/Josep Lago

Þýski knattspyrnumaðurinn Antonio Rüdiger, miðvörður Real Madríd, hefur verið úrskurðaður í sex leikja bann fyrir framferði sitt í 3:2-tapi fyrir Barcelona í úrslitaleik spænska konungsbikarsins á laugardagskvöld.

Rüdiger missti stjórn á skapi sínu í lok framlengingar þegar Barcelona var búið að skora það sem reyndist sigurmark leiksins.

Búið var að skipta honum af velli þegar miðvörðurinn fleygði ísmolum í átt að dómara leiksins Ricardo de Burgos Bengoetxea.

Fékk hann fyrir vikið beint rautt spjald líkt og Lucas Vázquez og Jude Bellingham, sem sömuleiðis hafði verið skipt af velli.

Rüdiger fór undir hnífinn í dag vegna meiðsla sem hann varð fyrir í úrslitaleiknum og verður því hvort eð er fjarverandi vegna þeirra á meðan Þjóðverjinn tekur út leikbann sitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert