París SG fer með forystu heim til Frakklands fyrir seinni leik undanúrslitaeinvígisins gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. París vann fyrri leik liðanna á Emirates-vellinum í Lundúnum á Englandi í kvöld, 1:0.
Biðin eftir sigurmarkinu var ekki löng því strax á 4. mínútu leiksins kom Ousmane Dembele gestunum yfir. Hann fékk boltann þá á miðjum vellinum, renndi honum til vinstri á Khvicha Kvaratskhelia og fékk hann svo aftur frá honum í vítateignum. Þaðan átti hann svo gott skot, reyndar með sköflungnum, í stöngina og inn, óverjandi fyrir David Raya í markinu. Varnarleikur Arsenal var hins vegar ekki góður en bæði Dembele og Kvaratskhelia fengu allan þann tíma sem þeir vildu með boltann í uppbyggingunni.
Bæði lið fengu góð færi til að bæta við mörkum en Kvaratskhelia átti skot úr fínu færi vinstra megin í teignum sem Raya varði eftir rúmar 25 mínútur. Skömmu síðar kom Raya sínum mönnum aftur til bjargar en hann varði þá stórkostlega frá Desire Doue.
Mikel Merino fékk frábært færi á 37. mínútu eftir klaufagang í vörn PSG. Hann fékk boltann þá um tveimur metrum frá marki og átti bara eftir að setja hann inn þegar Joao Neves laumaðist aftan að honum og potaði boltanum í burtu á síðustu stundu með frábærri tæklingu.
Gabriel Martinelli fékk svo besta færi heimamanna á lokamínútu fyrri hálfleiks. Myles Lewis-Skelly þræddi hann þá í gegn vinstra megin en Gianluigi Donnarumma varði vel frá Brasilíumanninum úr teignum.
Arsenal-menn héldu að þeir væru búnir að jafna metin eftir einungis 90 sekúndur í seinni hálfleik. Mikel Merino skallaði þá aukaspyrnu Declan Rice í netið af stuttu færi en eftir mjög langa skoðun í VAR kom í ljós að Merino var nokkuð langt fyrir innan.
Krafturinn var töluvert meiri í heimamönnum í upphafi seinni hálfleiks og á 56. mínútu fékk Leandro Trossard dauðafæri. Hann slapp þá einn gegn Donnarumma eftir góðan undirbúning Declan Rice en ítalski markvörðurinn sá við honum með stórkostlegri markvörslu.
Eftir þetta róaðist leikurinn töluvert. París náði ágætis stjórn á leiknum, liðið lá aftarlega og gaf fá færi á sér en hélt að sama skapi ágætlega í boltann þegar hann vannst. Arsenal-liðið reyndi þó allt hvað það gat til að jafna og fór með marga menn fram. Það varð til þess að gestirnir fengu góð færi og má segja að heimamenn hafi verið heppnir að lenda ekki tveimur mörkum undir.
Á 84. mínútu slapp varamaðurinn Bradley Barcola aleinn gegn David Raya eftir skemmtilegt þríhyrningsspil við annan varamann, Goncalo Ramos. Barcola ætlaði að renna boltanum í fjærhornið en hitti boltann afleitlega og setti hann framhjá. Einungis mínútu síðar slapp svo Ramos einn í gegn eftir langa sendingu fram völlinn en hann setti boltann í þverslánna með tánni úr teignum. Reyndist það síðasta alvöru færi leiksins.
Það eru því Frakkarnir sem fara með eins marks forystu í seinni leikinn sem fer fram í París sem fer fram á miðvikudaginn í næstu viku.