Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sagði liðið þurfa að framkvæma nokkuð sérstakt til þess að komast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir 0:1-tap á heimavelli fyrir París SG í kvöld.
Um fyrri leik liðanna í undanúrslitum var að ræða en liðin mætast aftur í París í næstu viku.
„Ég er svekktur með niðurstöðuna. Við lögðum svo hart að okkur í leiknum. Við áttum í vandræðum með að fá meðbyr og stjórn fyrstu 10-15 mínúturnar. Ég er svekktur að hafa ekki náð að minnsta kosti jafntefli.
Við áttum sérstaklega í vandræðum í einum þætti sem við leiðréttum eftir 15-20 mínútur og það breytti leiknum. Til þess að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þarf að framkvæma eitthvað sérstakt. Við þurfum að gera það.
Þetta er eitt af bestu liðunum og hefur unnið öll ensku liðin. Það er ekki hægt að yfirspila þá, gleymdu því. Þar sem við getum ekki verið ofan á verðum við að koma leiknum þangað sem við viljum hafa hann,“ sagði Arteta á fréttamannafundi eftir leik.
PSG hefur nú unnið Arsenal, Liverpool, Manchester City og Aston Villa í Meistaradeildinni á tímabilinu.