Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir kom ekki við sögu í heimasigri Wolfsburg á Hoffenheim, 2:1, í efstu deild þýska fótboltans í gær.
Sveindís hefur þá aðeins spilað nokkrar mínútur í síðustu tveimur leikjum sínum en hún kom inn á þegar tvær mínútur voru eftir gegn Freiburg í leiknum fyrir þann sem var í gær.
Sveindís hefur verið í minna hlutverki hjá Wolfsburg á þessu tímabili heldur en síðustu tímabil og hefur verið orðuð frá félaginu, en samningur hennar rennur út í sumar.
Þá hætti Tommy Stroot, þjálfari Wolfsburg, með liðið í byrjun þessa mánaðar og vissi Sveindís ekki hvort hún fengi meira að spila eftir það. Hlutverk hennar virðist þó aðeins hafa farið minnkandi.
Í samtali við mbl.is í síðasta landsleikjaglugga sagðist Sveindís vera í viðræðum við önnur lið en henni er, eins og áður kom fram, frjálst að færa sig um set í sumar.