Enska knattspyrnufélagið Manchester United tilkynnti í dag að liðið spili vináttuleik við Fiorentina frá Ítalíu 9. ágúst næstkomandi á heimavelli sínum Old Trafford.
Verður leikurinn sá síðasti hjá United á undirbúningstímabilinu fyrir næstu leiktíð og sá eini sem liðið leikur á heimavelli.
Albert Guðmundsson er leikmaður Fiorentina. Er hann að láni hjá félaginu frá Genoa og er með forkaupsrétt á sóknarmanninum.