Barcelona og Inter skildu jöfn í hörkuleik

Barcelona og Inter Mílanó gerðu 3:3 jafntefli er liðin mættust í fjörugum leik í fyrri undanúrslitaleik sínum í Meistaradeild karla í fótbolta á Ólympíuleikvanginum í Barcelona í kvöld.

Inter átti sannkallaða draumabyrjun og komst í stöðuna 1:0 eftir sína fyrstu sókn með marki frá Marcus Thuram eftir laglegan undirbúning frá Denzel Dumphries. Dumpries, sem átti frábæran leik, var síðan aftur á ferðinni á 20. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir fyrstu hornspyrnu Inter í leiknum. 

Forysta Inter varði hins vegar ekki lengi, en einungis fjórum mínútum síðar svaraði ungstirnið Lamine Yamal fyrir heimamenn sem hrukku í gang og hófu að sækja af miklu kappi að marki gestanna. Tilraunir Börsunga báru fljótlega árangur og jafnaði Ferran Torres metin með föstu skoti af stuttu færi eftir undirbúning frá Raphinha á 37. mínútu. 

Í síðari hálfleik héldu Börsungar áfram að sækja í átt að marki gestanna með hinn sautján ára gamla í Lamine Yamal í farabroddi. Var það því þvert gegn gangi leiksins þegar Denzel Dumfries stangaði boltann í netið beint úr hornspyrnu sem Inter hafði sótt eftir skyndisókn. Aftur voru heimamenn þó ekki lengi að svara fyrir sig og var það Raphinha sem þrumaði boltanum í þverslána áður en hann hafnaði á Yan Sommers, markverði Inter, og endaði loks í markinu.

Sóknartilraunir Barcelona héldu áfram þar sem eftir lifði leiks, en gestirnir vörðust vel og létu engan bilbug á sér finna. 3:3 jafntefli því staðreynd og allir möguleikar opnir í næstu viðureign liðanna sem fram fer þriðjudaginn 6. maí á San Siro vellinum í Mílanó. 

Barcelona 3:3 Inter Mílanó opna loka
90. mín. Inter Mílanó fær hornspyrnu Barcelona fær hornspyrnu í blálokin en Inter hreinsar frá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert