Enski knattspyrnumaðurinn Eric Dier mun yfirgefa Bayern München og ganga til liðs við franska félagið Mónakó í sumar.
SkySports í Þýskalandi segir frá en Dier ætlaði í fyrstu að endursemja við Bayern. Hins vegar gat félagið ekki boðið honum jafnlangan samning og Mónakó og því mun hann fara þangað.
Dier gekk óvænt til liðs við Bayern frá Tottenham í janúar í fyrra og hefur verið í nokkuð stóru hlutverki síðan.
Bayern þarf tvö stig til að verða Þýskalandsmeistari þegar þrír leikir eru eftir.