Erik ten Hag í nýtt starf í sumar?

Erik ten Hag stýrði síðast karlaliði Manchester United.
Erik ten Hag stýrði síðast karlaliði Manchester United. AFP/Darren Staples

Erik ten Hag gæti orðið næsti knattspyrnustjóri karlaliðs Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen í sumar. 

SkySports í Þýskalandi segir frá en Spánverjinn Xabi Alonso er líklega á förum frá félaginu og til spænska stórveldisins Real Madrid en hann vann bæði deild og bikar á síðustu leiktíð. 

Ten Hag, sem stýrði síðast karlaliði Manchester United, þykir líklegur eftirmaður en hann var rekinn undir lok síðasta árs frá enska félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert