Mikilvægt mark Vigdísar í Belgíu

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í Evrópuleik með Breiðabliki síðasta haust.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í Evrópuleik með Breiðabliki síðasta haust. mbl.is/Hákon

Knattspyrnukonan Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði í dag mikilvægt mark fyrir Anderlecht sem er í baráttu um belgíska meistaratitilinn og sigraði Standard Liege á útivelli, 4:2.

Vigdís skoraði þriðja mark Anderlecht á 55. mínútu, kom liðinu í 3:1, og það gerði í raun útslagið. Þetta er annað mark Vigdísar eftir að hún kom til félagsins eftir áramótin frá Breiðabliki.

Anderlecht er þá með 31 stig á toppi deildarinnar en liðið heyr einvígi við OH Leuven, lið Diljár Ýr Zomers, um meistaratitilinn. Leuven er með 28 stig og á leik í kvöld gegn Club Brugge, liði Láru Kristínar Pedersen.

Standard Liege er með 21 stig og Club Brugge 20 en þessi fjögur lið urðu efst í deildinni í vetur og leika áfram tvöfalda umferð innbyrðis um meistaratitilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert