U-beygja hjá Ancelotti?

Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti. AFP/Damien Meyer

Nú þykir ólíklegt að Ítalinn Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, verði næsti þjálfari brasilíska karlalandsliðsins í fótbolta. 

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá en Ancelotti náði munnlegu samkomulagi við brasilíska knattspyrnusambandið fyrir nokkrum dögum og var búist við því að hann myndi taka við landsliðinu áður en tímabilinu lýkur. 

Hins vegar hefur hann ekki enn fengið grænt ljós frá Real Madrid sem er ekki sátt við starfslokasamninginn eins og er. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert