Guðmundur Þórarinsson og liðsfélagar hans í Noah eru armenskir meistarar í knattspyrnu eftir sigur á Pyunik Jerevan, 2:1, á heimavelli Noah í Armavir í dag.
Noah er komið með 71 stig og er með 14 stig forskot á toppi deildarinnar og á þrjá leiki eftir. Ararat-Armenia er í öðru sæti með 57 stig eða 14 stigum minna og á fjóra leiki eftir. Liðið getur því aðeins unnið 12 stig og því ekki náð Noah.
Guðmundur Þórarinsson, sem er fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn til að spila með armensku liði, átti stórgóðan leik en hann lagði upp bæði mörk Noah í fyrri hálfleik. Hann lék allan leikinn.
🏆 | Ladies and Gentlemen, your 2024-25 Armenian Premier League CHAMPIONS. 🇦🇲
— Noah Football 🇦🇲 (@Noah_Yerevan) May 9, 2025
FOOTBALL CLUB NOAH. 🤍🖤 pic.twitter.com/2hT4wY6UAn